Já þá á
ég fleiri myndir af kosningar aðilum heldur en af ýmsum t.d.
afa og ömmu. Svo ef ég hefði viljann í að
nenna að fara á kosntninga-skrifstofur t.d. vinstri grænna þá
myndi ég segja; hvaða helvítis sjónmegun
er stækkun á álverið ef að þú setur mynd af sjálfum þér í
vilta náttúruna í Hafnarfirði hippinn þinn.
Svo segi ég líka jakkafata bjánar og
sljálfsumglaða fólk. Hamingju óskunum
hefur rignt yfir mig fyrir kosningar réttinn og ef þau geta
verið svo almennileg að óska mér svo til hamingju með afmælið
í október þá mun ég taka ofan hattinn fyrir þeim en þangað
til held ég þeim í burtu. Mér
fannst ég líka mjög sniðug þegar að ein
draktarmúsin ætlaði að kynna mér samfylkinguna og æðisgegni
þeirra þá sagðist ég vera 16 ára. Virkaði
mjög vel og get líka nýtt mér það í sundi og
strætó.
Nú er illt í efni. Málið er að
ég er búin að vera mikill fíkill í bubbles á leikjanetinu ljúfa.
Nú er það þannig að það er kominn einhver
apaleikur á leikjó og er ég búin að fá nokkuð nóg af bubbles því ég
hef klárað það mjög oft og tel það vera vegna afar mikillar færni
sem ég bý yfir. Þessi apaleikur er búinn að
halda mér uppi núna lengi og maður safnar borðum, núna er ég í
borði þar sem ég er með eina ör og verð að skjóta í pacman blöðru,
já maður spyr sig og kannski aðra “hvað er svo slæmt við það” en
það er mál með vexti að ég er með óvirka örvatakkana því að
tilrauna starfsemi mín misheppnaðist þegar ég ætlaði að taka
takkana úr til að hreinsa þarna undir. Þetta
gerir það að verkum að ég get ekki klárað borðið.
- nei það er ekki
hægt að nota l eða k eða m eða
fokk. Allt í lagi, læt ekki árar í bát þrátt
fyrir þessa mótstöðu
mína.
Klukkan er
þegar ég er að skrifa 05:35 og ég er alltaf að skrifa og stroka út
og skrifa og stroka út því að ásláttarvillur eru í hámarki.
Ég er búin að vera að drekka nokkra magica og
cult því að ég ætla að vaka að prófinu mínu ógurlega sem heitir
nát123. Náttúrufræði og stærðfræði eru þannig að
geta er tengd getu. Ég hef ekki öðlast neina
getu í þessu og hef ég ekki þakkað fyrir
það.
Sumarplönin
okkar:
dísa
Ég er að
fara að starfa sem fóstra. Ég er að fara
að vinna á leikskóla þar sem forstöðukonurnar voru að passa
mig í gamle dagen. Amma var nú líka að
vinna þarna og er hún strax farin að segja mér slúður af
konunum. Drengirnir hans Hilmars eru þarna
og mun ég að sjálfsögðu fara og veita þeim mína 100% athygli.
Þegar ég sagðist vera hætt í Hress var nú
bara plat. Einhvern veginn þá er mér ætlað
að vera þarna en ég verð hins vegar bara 1-2 kvöld í viku og
svo auðvitað frökenin í mér þá skúra ég þar líka.
Svo sem áhugamála starf verð ég á
hverfisbarnum annan hvern fimmtudag í
sumar.
Björk:
Þau ætla sér að verða fræg hún og Napoleon vinirnir.
Fara hringinn í kringum landið og spila fyrir
böllum og skemmtun.
Björk ætlaru að hætta á dong
ding dang?
Þau ætla sér að halda upp
sveitaböllum fyrir unga jafnt sem aldna og mun ég sinna mínu starfi
sem grúppía að halda í þau.
Björk er reyndar að
fara að rauðrófast á Spáni í 2 vikur. Með að rauðrófast þá
var
Björk úti í sólinni í fyrrafyrradag og hún
varð eins og rauða spjaldið í fótbolta.
Með
rófunni var að Björk Guðmunsdóttir fæddist með rófu sem var samt
tekin um leik en mér fannst þetta eitthvað svo samtengjast.
Valdís:
Pjölluskelin
ætlar að vinna í dömu-fata-verslun. Það er ekki
fyrir stórar og feitar stelpur nei heldur fyrir litlar sætar
mjónur. Ég þarf stæstu stærðina þarna ansk.
Stóru beinin í mér
neieni bara griiin bara
griin, ekki stór bein heldur litlar stærðir. Neee grrrrinn
griiin. Valdís fer líka til Spánar að skoða sig
um og ætlar að vera ofur vatnsberi í liðinu sísí freaks out.
Hún verður líklega fyrir nokkrum sjokkum en
sjokk gerir valdís bara að betri kokk.
Þegar í sumar þá ætla ég að rækta vinskap við
valdísi enn frekar.
Þá er það komið á hreint og málefni færst
yfir í eitthvað sem er ekki minna
mikilvægara.Er skoðun á því hvort ég
eigi að hafa krullur eða sléttað hár á laugardaginn.
Þegar að maður vakir alla nóttina þá hefur
maður mikinn tíma í svona pælingar og skipuleggur margt fyrir
sér. Samt búin að fara að pissa mjög oft
útaf neyslu en það er auðvitað bara gott að
pissa..
. Segi það gott í
bili..
Og kveð samt
með páskaeggja málshættinum sem er enn upp á borði “barnið vex en
brókin ekki”.
Held ég hafi fengið þetta
svolítið oft en oft er ekki toppurinn því þá hefði ég sagt
eiginelga allto oft.
DísaG